Bænir í karlamessu

Almenna kirkjubænin í útvarpsmessu dagsins, karlamessu í Langholtskirkju á boðunardegi Maríu.

Guð sem skapar.

Við komum fram fyrir þig í dag, minnugir þess að þú ert upphaf allra hluta. Gefðu okkur að sjá stöðu okkar í sköpun þinni. Gefðu okkur auðmýkt og kraft til að nálgast þig í þakklæti. Hjálpaðu okkur að vera minnug þess að allt er þitt. Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Guð sem nærir.

Við komum fram fyrir þig Drottin, vitandi að þinn er mátturinn og dýrðin. Hjálpaðu okkur að lifa í þakklæti og gleði yfir gjöfum þínum. Fyrirgef okkur þegar við misnotum gjafir þínar til eigin dýrðar, og svívirðum þannig tign þína og mátt. Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Guð sem elskar.

Gefðu okkur elsku til annarra, hjálpaðu okkur að brjótast úr sjálfhverfu karlmennsku og valdafíknar og gefast öðrum á vald. Þakka þér, elskuríki Guð, fyrir fyrirmynd Maríu, sem gaf sjálfa sig til þjónustu við aðra. Gefðu okkur þor til að elska eins og María elskaði. Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Guð sem elur.

Við leitum til þín Guð um hjálp. Gefðu að við megum læra að ala þau upp sem þú hefur treyst okkur fyrir. Gefðu okkur djörfung og dug svo við megum taka þátt í uppbyggingu þíns ríkis. Gefðu okkur þroska til að sinna um þá sem okkur eru falin. Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Guð sem verndar.

Kenndu okkur að gefast upp, leggja falsheit sjálfsánægjunnar til hliðar og hvíla í þér. Við leitum til þín Guð, taktu okkur undir væng þinn, leyfðu okkur að hvílast, leyfðu okkur að vera sem börn. Gefðu okkur hugrekki til að þora að leita til þín. Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Guð sem kallar.

Ég vil svo gjarnan hlusta á rödd þína. Gef mér ró í hjarta til að hlusta. Gef mér gæfu til að staldra við og heyra. Hjálpaðu mér að stíga út úr skel karlmennskunnar og fylgja kalli þínu. Hjálpaðu mér að horfast í augu við sjálfan mig og taka undir með Jeremía spámanni: “Hér er ég, send þú mig”. Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Guð sem stendur með okkur.

Þú sem gerir alla hluti nýja. Við megum treysta því að þú standir með þeim sem líða. Hjálpaðu okkur að standa með þeim sem minna mega sín. Hjálpaðu okkur að berjast hinni góðu baráttu. Hjálpaðu okkur að hlusta, elska og virða þá sem við eigum svo auðvelt með að sjá ekki. Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Guð sem gengur á undan.

Jesús Kristur, þú skoraðist ekki undan. Þú gekkst á undan okkur, steigst fram gegn óréttlætinu og valdhöfum sem misnotuðu aðstöðu sína. Guð, Jesús Kristur, gefðu okkur að stíga fram, taka afstöðu með sannleikanum, fylgja í fótspor þín og leggja okkur sjálf í sölurnar í baráttunni fyrir réttlæti og friði. Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Upprisni Frelsari, Jesús Kristur.

Við þökkum þér og við lofum móður þína, sem tókst á við mikilvægasta verkefni allra tíma. Við þökkum fyrir mæður og feður, sem takast á við köllun sína af einlægni og auðmýkt. Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Guð sem grætur.

Kenndu okkur að gráta með þér. Gerðu tár okkar að árfarvegi réttlætis og friðar, hvar sem karlmennska og sjálfumgleði hafa leitt til hörmunga og sorgar. Við leitum til þín um að gefa okkur auðmýkt. Við köllum til þín Guð, gefðu okkur karlmennsku og styrk sem leyfir okkur að gráta. Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Drottinn Guð við biðjum alls þessa og leggjum allt líf okkar fram fyrir þig og biðjum:

Faðir vor…