Jesaja 52. kafli

Yfirvofandi heimkoma úr útlegðinni verður gleðitíð. Guð mun leiða þjóð sína á ný til Jerúsalem, til Síonar. 

Hefjið upp fagnaðarsöng allar í einu,
rústir Jerúsalem,
því að Drottinn hefur huggað þjóð sína,
endurleyst Jerúsalem.

Þjónn Guðs, Ísraelsþjóðin, sem svo mörgum bauð við, …

mun giftusamur verða,
hann mun verða mikill og veglegur og hátt upp hafinn.
Eins og marga hryllti við honum,
svo afskræmdur var hann ásýndum
að vart var á honum mannsmynd,
eins mun hann vekja undrun margra þjóða
og konungar munu verða orðlausir frammi fyrir honum
því að þeir munu sjá það sem enginn hefur sagt þeim
og verða þess áskynja sem þeir hafa aldrei heyrt.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.