Kristilega skólahreyfingin

Í dag var mér bent á auglýsingu frá Kristilegu skólahreyfingunni þar sem leitað er eftir einstaklingi með djákna- eða guðfræðimenntun til starfa sem starfsmaður Kristilegu skólahreyfingarinnar, KSH, í 50% starf. Þegar ég fékk vígslu sem djákni fyrir 17 árum þá var þetta draumaframtíðarstarfið mitt. 

Í umræðu um atvinnuhorfur og framtíðarstarfsmöguleika í kirkjunni, þá er áhugavert að skoða hvernig þetta starf virðist hafa opnað tækifæri fyrir starfsmenn til frama á vettvangi kirkju og kristni á Íslandi. Hér á eftir er listi yfir þá starfsmenn sem ég man eftir að hafi starfað sem skólaprestar/framkvæmdastjórar skólahreyfingarinnar frá upphafi. Listinn er ekki nauðsynlega í réttri röð.

  • Jón Dalbú Hróbjartsson, fyrrv. prófastur og sóknarprestur í Hallgrímskirkju.
  • Gísli Jónasson, prófastur og sóknarprestur í Breiðholtskirkju.
  • Ólafur Jóhannsson, sóknarprestur í Grensáskirkju.
  • Guðni Gunnarsson (látinn).
    • Hildur Sigurðardóttir, prestur.
      • Hildur var ársmaður KSH og leysti Guðna af í veikindum hans.
  • Gyða Karlsdóttir, fyrrv. framkvæmdastjóri KFUM og KFUK á Íslandi.
  • Ragnhildur Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Hins íslenska Biblíufélags.
  • Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra Kristniboðsfélaga.
  • Guðmundur Karl Brynjarsson, sóknarprestur í Lindakirkju.
  • Guðni Már Harðarson, prestur í Lindakirkju.
  • Jón Ómar Gunnarsson, prestur í Glerárkirkju.
  • Magnea Sverrisdóttir, djákni og kennari, fulltrúi Íslands í stjórn Lútherska Heimssambandsins.

Þegar horft er yfir listann virðist starfið nýtast sem stökkpallur til metorða í kirkjunni. Ef við lítum svo á að verkefni prófasta, sóknarprestsstörf, þjónusta í stórum prestaköllum eða framkvæmdastjórastöður í virtum félagasamtökum séu mælikvarði á árangur í starfi.

Þegar ég var ríflega tvítugur þá sá ég þetta fyrir mér sem framtíðarstarf, enda á þeim tíma fátítt að geta unnið með fólki á aldrinum 16-25 ára á vettvangi kirkju og kristni.

En hvort sem umsækendur telja þetta mögulegt framtíðarstarf eða 3-5 ára millileik, þá er óhætt að segja að tækifærið sé frábært.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.